Dagskráin fyrir Reunion-ið
Laugardaginn 26 nóvember 2005 er eins og hér
segir....
13:00 – 15:00 –
Mæting til Sissó á Hjallabraut 2 eða þá til Heimis að Bröttukinn
27. Vill minna fólk á það að passa vel upp á að vera ekki orðið
ofurölvi áður en við förum ofan í lónið. Starfsfólkið í lóninu veit
að við erum að koma og það á eftir að fylgjast vel með okkur í
sambandi við áfengineyslu og þessháttar....
16:00 – 16:20 –
Mæting stundvíslega upp á Öldútúnsskóla og þaðan munum við fara með
rútunni í bláa lónið. Rútan leggur af stað í seinasta lagi
16:30.
17:15 – 17:20 –
Vonandi að sem flestir hafi ekki gleymt að taka með sér sundskýlu
og sundföt því á þessu tímapunkti erum við að stíga ofan í Lónið og
höfum góðan klukkutíma til þess að slaka á og láta fara vel um
okkur.
18:00 – 18:30 –
fólki er frjálst að fara upp úr hvenær sem er en það verða allir að
vera klárir í Hlaðborðið kl nákvæmlega
19:00
19:00 – 21:30 –
Slökum vel á eftir lónið og njótum matarins og höfum það Kósý.
Hlaðborðið er á boðstólnum á þessum tíma fyrir okkar hóp og því
fyrr sem setjumst að borða því meiri tíma höfum við til þess að
slaka á eftir mat og koma okkur heim í fjörðinn með
rútunni.
21:30 – 22:00 –
Förum í seinasta lagi kl 22:00 með rútunni í bæinn
og er stefnan þá annað hvort sett til Heimirs eða þá
Hansen-Sportbarinn-Áttuna ??? ræðum það betur
þegar við erum á leiðinni heim.
22:00 - 23:00 –
komum til Heimis eða þá á skemmtistað og eftir þennan tíma er allt
óráðið og nú er bara að fólk fari að koma með hugmyndir um hvert
við gætum farið.
Fyrir þau sem ætla sér ekki að
mæta í lónið og taka allan pakkann með okkur þá er
Krissi búinn að sjá um smá Partý fyrir þann
hóp og um er að ræða að hittast á A.Hansen
kl 22:00 - 22:30
og munum við hin sem
ætlum okkur í Lónið síðan mæta þangað þegar við erum kominn
heim... Ekki er hægt að segja til um nákvæmlega klukkan hvað
við verðum Mætt á Hansen því að
Heimir Bæringur er búinn að bjóða í Partý
til sín eftir Lónið og er líklegt að einhverjir muni
vilja kíkja þangað svo eiga svona tímaáætlanir
oftast til með að raskast töluvert en við
Krissi munum bara vera í góðu sambandi okkar
á milli upp á að hóparnir munu ná saman á
laugardagskvöldinu...
Með Kveðju og SvakaSpennu
fyrir Heavy Djammi Ómar Freyr..